Því ég bý í sveit og á sauðfé á beit

03.03.2008 00:04:32 / sveitaspjall

Þá er að duga eða drepast

Ekki get ég sagt að ég sé í hópi afkastamestu bloggaranna, en ég er þá ekkert að meyðirðast neitt á meðan. En lífið í sveitinni heldur éfram þó skrifin staðni og er það helst að frétta að það er búið að klæða alla útveggi á neðri hæðinni í húsinu og eftir að reisa einn millivegg. Það er búið að fara smá tími í að styrkja burðinn í húsinu og ganga endanlegu skipulagi. Búið er að færa stigann úr miðju húsins og út í horn, stiginn sem var á milli hæðanna verður notaður til bráðarbirgða þangað til búið er að útvega annann. Núna fyrir helgi var steypt í baðherbergisgólfið á miðhæðinni og gékk það alveg ótrúlega vel og held ég því fram að það sé ekkert mál að vera múrari....svo lengi sem maður veit hvað maður er að gera. Það verður allt sett á fullt í þessari viku viða ð reka lokahnútinn á klæðningu neðrihæðarinnar því Jói Jó afi hennar Ingu er að hverfa til annara verka og verður þá stórt skarð í framkvæmdarkraftinum. En Guðjón hinn afi hennar er að koma í þessari viku líka að fara í pípurnar og tengja ofna. meiri fréttir af framkvæmdum síðar. 

Ég kíkti á www.kindur.is þar sem maður getur fóstrað eða keypt kind fyrir litlar 39.500 kr fyrir árið. Þvílík snilldar hugmynd. Held að þetta sé sóknarfæri fyrir suðfjárbændur, sauðfjárfóstrur kannski, eða fyrir kúabændur....Kaupa hana skjöldu og fá senda mjólk úr henni á hverjum degi.

» 3 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 16:39:04 / sveitaspjall

Jæja þá í þetta sinn

Vegna gífurlegrar eftirspurnar og þrýstings hef ég látið í minni pokann og sest við skriftir á milli anna. Hér í sveitinni er allt hvítt af snjó og fékk ég ástæðu til að prufukeyra Kubotinn við snjómokstur í gær. Reyndist hann allvel við þá iðju en sé ég fram á að þurfa stærri skóflu framan á kvikindið ef vetur konungur verður í þyngri kantinn í vetur. Af húsinu er það að frétta að innan skamms verður það orðið fokhelt. Flest allir gluggar komnir í og nánast búið að glerja þá alla. Einungis er eftir að setja glugga í kvistinn og í gamla eldhúsið. Það er langt komið að einangra í loftið og búið að setja tommu ull á flesta útveggi. Verktakinn er ekki ennþá búinn að klára þakið og er farið að styttast þráðurinn á þolinmæðisbombunni hjá undirrituðum. Hvað varðar búfénað þá hef ég fækkað bústofninum úr 120 vetrarfóðraðar í 106. Þar af eru 4 fullorðnir hrútar, tveir lambhrútar og 6 lífgimbrar. Þessi ákvörðun var tekin í ljósi dræmrar uppskeru og er meiningin að með bættri ræktun og aukinni áburðarnotkun verði hægt að auka vel fram ú hófi á næstu árum. Hef ég orðið var við það að dóttir mín er með afburðum fjárglögg og áhugasöm um kindur. Reyndar urrar (urrrrrrrrrrr) þegar hún sér kindur og tel ég það vera merki um mikla matarlyst hjá henni, eða það að hún hafi verið fjárhundur í fyrra lífi. Þessa stundina er verið að gera klárt fyrir endanlega komu veturkonungs með því að huga að vatnsmálu (halda frostfríu) og stinga út þau fáu spörð sem eru í húsunum.

Meira verður það ekki að sinni, lifið heil

Kveðja úr Samtúni


» 10 hafa sagt sína skoðun

06.08.2007 08:51:37 / sveitaspjall

Vegna gífurlegra anna

Jæja ætli að það sé ekki best að koma með einhverjar fréttir.                                              Fyrri slætti er að mestu lokið en ég á eftir að slá fyrir neðan þjóðveg. Það var ekki ætlunin að slá það núna í ár en vegna þess hve lítið hefur fengist af hinum túnunum ætla ég að reyna hirða fyrir neðan veg í síðasta skiptið. Eins og margir vita að þá er verið að undirbúa byggingarframkvæmdir fyrir neðan veg og veit ég til þess að allavegana tvær lóðir eru seldar. Vélaver og vélatorg eru með eina lóð en ég veit ekki hver er með hina. Eins og fyrr segir hefur uppskeran ekki verið gríðarleg undanfarið og þau stykki sem voru eitthvað beitt voru sein af stað og spruttu lítið. Fjöldinn af rúllum er ekki eins glæsilegur og í fyrra en aftur á móti eru rúllurnar þéttari og þyngri núna en áður. Kubotan nær að þjappa betur í Kroninn. Það er allt annað líf að hafa Kubotuna við að rúlla heldur en gamla góða Zetorinn. Mér reiknast það til að ég sé svona allt að helmingi fljótari að rúlla núna. Flöskuhálsinn er þá aðallega bindingin á Kroninum. En einhvern tímann á næstu árum er möguleiki á að kaupa sér nýja rúlluvél og þá jafnvel bara samstæðu eða sambyggða. Ég fékk loksins vökvatjakkinn á sláttuvélina og´setti knosara kvikindið á í leiðinni til að prufa. Það hafði afgerandi áhrif á hvað það var fljótt að þorna og munar þó nokkru að knosarinn dreifir aðeins úr sláttumúgunum en aftur á móti er það spurning um kjörtímafrávikin. Ég er háðari því að það gangi allt nokkuð hratt fyrir sig ef ég ætla ekki að tapa dýrmætum næringarefnum úr heyinu. Kubotan fór á verkstæði fyrir helgi og er spurning hvenær ég fæ hana aftur. Það fór í henni ventlalokspakkning og fór ún að smita út olíunni. Svo var einn felguboltinn forskrúfaður og svona smotterí eitthvað. En á meðan fékk ég lánaða Landini Gibli 100. Þetta er 95 hestafla framdrifin vél með Landini tækjum. Verð ég að viðurkenna að ég hef keyrt betri og skemmtilegri vélar. Hún minnir mig á sambland af Zetor og Fiat. Hún er á engan hátt kúplingsfrí og er kúplingin á henni leiðinlega stíf og stutt. Þetta er höst vél og með leiðinlegan þyngdarpunkt. Innréttingin er voðalega óvönduð, fátækleg og minnir á Fiat Panda. Aftur á móti er hún nokuð lipur og með góðan beygjuradíus, það er nokkuð gott útsýni fram fyrir hana og með góðan ljósabúnað. Hún togar nokkuð vel og er með gott viðbragð og ágætis snerpu. Þetta væri fín vél sem Nr 2, ef hún væri ekki svona dýr.


» 14 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 01:25:17 / sveitaspjall

Jæja þá

Vinnudagurinn mikli númer eitt gékk með ágætum vel. Það var úrvalslið sem mætti á svæðið. Haukur og Inga Bryndís, Sigurður Brynjar, Bryndís og Viktoría og svo Einar, Inga og Jóhanna Margrét. Byrjað var á léttum vinnuskóla æfingum og gengið um efra túnið og tínt plast, baggabönd og ull. Þegar því var lokið var farið niður í hús og nánast öllu sem þar var inni var ruslað út. Klárað að naglhreinsa, rífa niður gömul rafmagnsror, þrifið og gengið frá. Þá er hægt að segja að loksins er eitthvað farið að gerast í húsinu.

Heyskapur er hafinn og búið að slá og taka saman sunnan heimreiðar. Vegna þess hve Krone bindivélin mín er gömul ljót og ryðguð tel ég nauðsynlegt að fjárfesta í nýrri bindivél aftan í svona fallegan traktór eins og Kubotan er8) en líklegst er það ekki á fjárhagsáætlun næstu 5 árin:cry:

Kálið er komið vel af stað eftir talsverðar rigningar undanfarna daga og virðist sáningin hafa tekist nokkuð vel þó ég segi sjálfur frá. Ég er í óða önn að keyra heim rúllum og stefni í að fara slá yfir í Syðsta Samtúni strax og veður leyfir. Það gengur hægt að keyra rúllunum því ég tek bara tvær í ferð. Eina að framan með rúllugreipinni sem ég verslaði um daginn og eina að aftan með rúllugreipinni sem ég smíðaði á Hvanneyri. Vökvagreipin sem ég keypti í Vélaborg er ekki bestu kaup sem ég hef gert. Hún er framleidd af Cashel´s Engineering og er Írsk. Hún opnast full lítið og er með tjakkinn alveg óvarin að ofan. Það tekur smá stund að ná lagi á hana en hún er alls ekki nógu góð. Ég mæli eindregið Ekki með svona greip. Greipin sem var smíðuð af Einar´s Engineering er aftur á móti algjör snilld og nauðsynleg á hvert heimili.


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 01:32:58 / sveitaspjall

Vinnudagurinn mikli

Jæja þá er stefnt að vinnudegi (fyrsta af nokkrum vonandi). Meiningin er að gera einhvern skurk í sveitinni og húsinu á laugardaginn næsta. Allir sem vettlingi geta valdið eru hvattir til að mæta og fá smá sveitasælu í æð. Deginum verður svo slúttað með heljarinnar shindigi, grill og jafnvel eitthvað af veigum. Endilega látið mig vita hverjir geta mætt svona sirka, svo ég viti hvað ég á að setja mörg læri í holuna. Það verða verkefni við allra hæfi og jafnvel fyrir þá lötustu. Endilega skverið ykkur í sveitagallann, eða diskógallann ef þið viljið, grípið með ykkur eitthvað af veigum og mætið hress.  

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 01:17:13 / sveitaspjall

Jæja er ekki best að halda sig við efnið.

Jæja þá er pressan komin á kallinn....ætli maður verði ekki að halda áfram skrifum fyrir dygga aðdáendur. Ég kláraði að sá í flagið á föstudaginn, setti í það kál (vetrarrepju) og rýgresi. Þetta geri ég til að beita lömbunum á í haust þegar þau koma heim. Hægt er að ná þeim upp um 2 - 3 kg og jafnvel einn í gerð. Semsagt meiri þyngd og betri flokkun þýðir meiri $$$$$. Tætarinn var með bölvuð leiðindi við mig og var alltaf að losa hnífaboltana og tókst mér að týna einum hníf. Þetta er víst algengt þegar þeir eru nýir en ekki hef ég heyrt það áður. Ég sáði í flagið með gamalli sáningsvél frá búnaðarfélaginu Trölla og gekk það upp og ofan...en hafðist fyrir rest. Eftir mikil veisluhöld í gær þar sem var holugrillað tvö læri og fínheit fór mesti parturinn af deginum í dag í leti og ómennsku. En seinnipartinn var farið í það að smala saman féinu og rýja það svo hægt sé að sleppa því á fjall. Fjörtíu stykki rúin í kvöld og restin bíður morguns......sveittur og þreyttur ætla ég að halda heim á leið í sturtu og bjór.....

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 01:29:55 / sveitaspjall

Aðeins að missa það

Jæja þá er búið að bæta í vélaflotann. Á fimmtudaginn síðasta þá fór ég og náði í nýjan Kubota M125X traktór og Celli P140 hnífatætara aftan í Kubotuna. Svo á föstudaginn fór ég og náði í Deutch Fahr KM 3.21 tromlusláttuvél með knosara (knosarinn fylgdi með). Fyrsta verkið var að tæta kartöflugariðnn hjá Magnúsi í Syðsta Samtúni og svo tætti ég um hálfan hektara af gömlu túni fyrir ofan bæinn heima. Þar er meiningin að sá káli sem haustbeit fyrir lömbin. Þarf að koma fræjum í flagið strax eftir helgi. Geri það líklegast með áburðardreifara (sem ég á ekki til).

Það gengur hægt í húsinu, er bara búinn að vera taka til og hreinsa. Reif reyndar gluggana úr sólstofunni úr um daginn, á nefnilega til glugga í hana: Svo fór ég með mál af restinni af gluggunum niður á Börkinn til að fá tilboð....var ekki alveg eins há tala og ég reiknaði með. Ég og Inga erum svo að fara á stúana (eða er það stúfana?) á morgun að ræða við arkitekta og leita tilboða.

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 00:34:05 / sveitaspjall

Sveitasnakkið

Hér er meiningin að vera með reglulegar hugrenningar um vélar og tæki sem tengjast landbúnaði.Einnig mun ég koma eitthvað inn á lífið og tilveruna í sveitinni minni. Ég heiti Einar Kristinn Brynjólfsson og er lærður búfræðingur frá Hvanneyri. Ég bý eins og er inn á Akureyri en er að fara flytja búferlum í mína heimasveit Mið Samtún Hörgárbyggð. Þar búa foreldrar mínir og yngsti bróðir og þar rek ég ásamt fjölskyldu minni lítið "hobby" sauðfjárbú með um 120 kindur, nokkur hross og fjárhundinn Pílu. Ég og unnusta mín Inga Björk Svavarsdóttir og dóttir okkar Jóhanna Margrét erum að vinna í því að koma okkur í gamla íbúðarhúsið á jörðinni og er það fokhelt í dag.

Hér mun ég sem fyrr segir koma með eitthvað af hugrenningum um landbúnað, sveitina mína, hundinn, húsið, fjölskylduna og allt annað sem mér dettur í hug. 


» 1 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill